Agnes Bragadóttir, fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu, er í athyglisverðu viðtali í nýjasta tölublaði Þjóðmála. Agnes settist í helgan stein árið 2019 eftir 35 ára starf á Morgunblaðinu.
Í viðtalinu kemur hún meðal annars inn á samskiptin við stjórnmálamenn, en eitt af sérsviðum Agnesar var umfjöllun um íslenska pólitík. Í viðtalinu rifjar hún upp þegar kastaðist í kekki milli hennar og Gunnars Thoroddsen, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra á árunum 1980 til 1983.
„Þá hringdi ég beint í ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Hann ætlaðist nú ekki til þess að ég hefði númerið þar, enda gaf hann mér það ekki. „Hver gaf þér þetta númer?“ spurði hann grimmur eftir að ég hafði kynnt mig. Ég hló og sagði að ég gæfi ekki upp heimildarmenn. Honum fannst það ekki jafn fyndið en hann svaraði þó spurningunni sem ég hafði hringt til að spyrja hann um, reyndar í stuttu máli.“
Þá nefnir Agnes þann stjórnmálamann sem hvað erfiðast var að ná í, Dag B. Eggertsson núverandi borgarstjóra.
„Hann svarar bara þegar honum sýnist og ef hann hefur grunsemdir um að erindið sé óþægilegt fyrir hann svarar hann bara alls ekki. Hann hefur einstakt lag á því,“ segir hún og bætir við að hún hafi fundið aðferð gegn þessu sem hún beitti að vísu bara einu sinni.
„Þá skrifaði ég frétt um hvað það var sem ég vildi ræða um við hann og hversu oft ég hefði reynt að ná í hann vegna málsins, án árangurs. Hann svaraði símanum næst þegar ég hringdi. Maður verður bara að taka þessa gaura og kenna þeim.“