Á­fram rignir á Seyðis­firði: Gerist á um 50 ára fresti

Heldur dró úr úr­komu og vatns­aga á Seyðis­firði í gær­kvöldi og nótt. Síðasta aur­skriðan sem vitað er um féll um klukkan tíu í gær­kvöldi en eftir það virðist á­stand hafa náð meira jafn­vægi. Engar skriður hafa fallið í morgun eftir því sem best er vitað. Beðið er birtingar til að kanna betur að­stæður.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglunni á Austur­landi.

Þeir í­búar sem rýmt hafa hús sín og þurfa nauð­synjar eru hvattir til að leita í Sæ­ból, hús björgunar­sveitarinnar Ís­ólfs á Seyðis­firði. Þar bíður að­stoð við að fara inn á svæðið auk nýjustu upp­lýsinga.

Lög­reglan stefnir að því frá og með há­degi í dag að senda reglu­lega SMS skila­boð til þeirra sem eru á Seyðis­firði með upp­lýsingum og leið­beiningum. Skila­boðin eru send í sam­vinnu við Fjar­skipta­mið­stöð ríkis­lög­reglu­stjóra. Upp­lýsinga fyrir íbúa á Seyðis­firði er því að leita í björgunar­sveitar­húsinu á Seyðis­firði auk þess sem frétta­til­kynningar verða reglu­lega sendar á þessum vett­vangi og á fés­bók lög­reglu auk SMS skila­boða eins og áður sagði. Þá má leita upp­lýsinga á heima­síðu Múla­þings, mulat­hing.is.

Fjallað er um at­burðina fyrir austan á Face­book-síðu Bliku sem veður­fræðingurinn Einar Svein­björns­son heldur úti. Hann segir að fá klukkan 9 að morgni síðast­liðins mánu­dags og þar til nú sé mæld úr­koma á Seyðis­firði um 270 milli­metrar.

„Í ný­legu upp­færðu mati Veður­stofunnar á endur­komu­tíma úr­komu fyrir 43 stöðvar má heim­færa þetta úr­komu­magn 48 klst. til 50 ára at­burðar. Sem sé endur­komu­tími þetta mikillar úr­komu er um 50 ár og jafn­vel rúm­lega það,“ segir í færslunni en matið byggir á mælingum á árunum 1979 til 2017.

Spár gera ráð fyrir að heldur dragi úr úr­komu í dag en þó má gera ráð fyrir 30-40 milli­metrum á Seyðis­firði. „Meiri rigning á lág­lendi hins vegar í nótt og á morgun og spáð 70-80 mm á 36 klst fram á miðjan föstu­dag,“ segir Einar og bætir við að sam­tals gætu þetta því orðið 450 til 500 milli­metrar á Seyðis­firði á um 10 dögum. „Það telst vera af­taka­mikil (e. extreme) úr­koma á alla hér­lenda mæli­kvarða.“

Til saman­burðar má geta þess að árs­úr­koma í Reykja­vík árið 2019 var 867,8 milli­metrar en á Akur­eyri var hún 692,8 milli­metrar.