„Dauðinn kennir manni það að það er ekkert sjálfsagt og þú skalt njóta hverrar mínútu,“ segir Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari í nýjum hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar.
Kjartan var vinur Jóns Páls Sigmarssonar, sem var um langt skeið sterkasti maður heims, en eins og kunnugt er lést Jón Páll árið 1993. Um svipað leyti dundu fleiri áföll yfir í lífi Kjartans. Hann missti móður sína, fleiri nána vini og son sinn.
„Ég fékk lexíu í því hvað dauðinn kennir manni á þessu tímabili og það er ekkert sem kennir manni meira,“ segir Kjartan meðal annars í viðtalinu. Hann segir það góða reglu að ganga alltaf til hvílu að kvöldi án þess að eiga í illdeilum við fólk.
„Það er ekkert til verra en óuppgerðir hlutir við fólk sem fer. Ég þekki það eftir að hafa misst báða bræður mína í fyrra og hitteðfyrra,” segir hann meðal annars.
Kjartan ræðir tímann með Jóni Páli sérstaklega en hann var með í uppbyggingunni á Gym 80 áður en Jón Páll lést.
„Gym 80 var á frábærri leið þegar Jón Páll fór. Þetta var gríðarlegt sjokk og eiginlega svo mikið sjokk að ég náði mér bara ekkert eftir það. Þetta átti ekki að gera gerst,“ segir Kjartan áður en hann talar um daginn örlagaríka.
,,Við ætluðum að taka réttstöðulyftu saman og gervihnattasjónvarpið sem var þarna hafði dottið úr sambandi. Hann var að hita upp niðri þegar ég ætlaði að hoppa upp til að plögga sjónvarpinu í gang aftur. Þegar ég kem niður og labba framhjá afgreiðslunni þá segir sá sem er í afgreiðslunni: „Kjartan, ég held að Jón Páll sé dáinn“…þetta er ennþá bara í hálfgerðri þoku. Ég labba inn í sal í einhverri leiðslu og þá liggur Jón Páll þar og hafði greinilega dottið aftur á bak eftir einhvers konar aðsvif. Við vorum þarna þrír að reyna að blása í hann lífi. Ég man að sjúkrabíllinn var mjög fljótur á staðinn, en þetta er enn í móðu eins og ég segi, skuggalegt atvik. En ég man alltaf eftir því að aldrei þessu vant var mamma hans að æfa á þessum tíma og hún segir við mig: ,,Kjartan, Kjartan, hvað er að”…og allt í einu erum við bara komin á spítala og það er lítill gluggi og svo bara kemur einn úr læknateyminu út og segir að þetta sé búið. Þetta er tímabil í mínu lífi þar sem dauðinn ákveður að kenna mér lexíu, af því að mamma fór líka mjög óvænt á svipuðum tíma og svo fór kúnni sem var í þjálfun hjá mér, fleiri vinir og síðan missti ég tveggja daga gamlan son.“
Kjartan segir í viðtalinu að Jón Páll hafi verið magnaður náungi sem hafi kennt sér gríðarlega margt:
„Jón Páll var rosaleg fyrirmynd. Ég var svo heppinn að fá að ferðast með honum og sjá hvað hann var vinsæll erlendis. Hagmæltur, fyndinn, fljótur að hugsa. Hann var með allan pakkann. Ofboðslega aðlaðandi maður, góður karakter og góður vinur. Hann nýtir sína orku í ofurmannlegan „fókus“ og setti allt í að verða bestur.“
Í viðtalinu fara Sölvi og Kjartan yfir lífshlaup Kjartans, sem hefur upplifað hluti sem eru lyginni líkastir, eins og tímabilið þegar hann þjálfaði einn ríkasta mann Grikklands. Þeir hittu kraftaverkafólk, keyrðu um Evrópu á Lamborghini og leituðu að geimskipum með leynisamtökum.
Viðtalið í heild má sjá hér að neðan: