Afmæli Sólheima 90 ára áfram í kvöld - Seinni þáttur

Seinni hluti þátta um Sólheima er sýndur í kvöld á Hringbraut. Rætt er við íbúa og starfsmenn og sýnt frá afmælisveislunni sem haldin var þann 5.júlí síðastliðinn á Sólheimum sem fagna 90 ára afmæli.

Linda Blöndal fer um Sólheima og kynnumst við lífi og starfi íbúanna, kíkjum í elsta íbúðarhúsið þaðan sem stofnandinn Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir stýrði starfi Sólheima - og bjó með mörgum börnum og starfsfólki í tugi ára. Húsið ber einstakt merki Rudolfs Steiner um mannvernd- og umhverfisvernd, sem hugmyndafræði Sólheima er sótt mest til.

Fyrri þátturinn var á dagskrá miðvikudagskvöldið 30. september og sá síðari er í kvöld, miðvikudaginn 7.október

Umsjón með þáttunum hefur Linda Blöndal sem ásamt tökumanni, Gunnari Antoni Guðmundssyni sóttu Sólheima heim á afmælisdaginn.