Öllum messum á laugardögum og sunnudögum í Landakotskirkju hefur verið aflýst. Þetta kemur fram í yfirlýsingu David B. Tencers, biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Landakotskirkja braut á samkomubanni í annað sinn í gær þegar allt of margir voru komnir saman þar inni til messu. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
Í upptöku frá messunni má sjá sóknarprestinn með grímu en hann gengur á milli kirkjugesta hver á fætum öðrum og færir þeim oblátu í munn.
„Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudags-messum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá er óskað eftir að reglunum verði breytt: „Á sama tíma bið ég alla sem bera ábyrgð á sóttvarnarreglum að breyta þeim reglum þar sem jafnræðis virðist ekki gætt. Kirkjur okkar eru ekki litlar. Ef hægt er að halda jarðarför eða jafnvel tónleika með 50 persónum, hvernig stendur þá á því að aðeins tíu manns geta verið í messu?,“ segir í yfirlýsingunni. „Hvernig á ég að útskýra það fyrir sóknarbörnum okkar að margir matsölustaðir mega taka á móti fleiri viðskiptavinum?“