Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og vörslu efnis sem sýndi barnaníð.
Fórnarlambið í málinu var stjúpbarnabarn mannsins en í ákæru kemur fram að hann hafi í nokkur skipti frá árinu 2018 og fram til júnímánaðar 2019 „haft önnur kynferðismök en samræði“ við stúlkuna með því að láta hana fróa sér.
Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni fimm ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Loks var hann ákærður fyrir að hafa á árunum 2016 til 2019 ítrekað skoðað barnaníðsefni á netinu. Á farsímum sem lögregla lagði hald á fannst eitt slíkt myndband og 2.537 slíkar ljósmyndir í flýtiminni símanna og á fartölvu mannsins.
Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en dómari horfði meðal annars á upptöku af framburði stúlkunnar fyrir dómi í barnahúsi og mat hann trúverðugan. Taldi dómari útilokað að barn gæti lýst athöfnum eins og hún gerði án þess að hafa upplifað þær með einhverjum hætti.
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir seinni ákæruliðina, vörslu barnaníðsefnis og að hafa skoðað slíkt efni. Hann neitaði sök hvað þá liði varðar og sagðist ekki vita hvernig myndirnar komu upp á yfirborðið. Dómari mat framburð mannsins hins vegar ótrúverðugan.
„Með hliðsjón af því mikla magni af smámyndum í flýtiminni síma ákærða og þeim skrám, sem benda til barnaníðs, sem fundust í tölvum hans og flakkara, verður að telja útilokað að allt þetta efni hafi verið í búnaði ákærða án þess að hann hafi nokkurn tímann skoðað alla vega hluta þess. Þá liggur fyrir að í tölvum ákærða fundust fimm eintök af sömu ljósmyndinni sem sýna barn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, sbr. ákærulið 2. Ákærði kannaðist ekki við þessa mynd en telja verður útilokað að hún hafi getað vistast á fimm mismunandi stöðum í tölvum hans án þess að honum hafi verið kunnugt um vörslur sínar á myndinni,“ segir í niðurstöðu dómara.
Dómurinn yfir manninum er sem fyrr segir óskilorðsbundinn en auk þess var honum gert að greiða stjúpbarnabarni sínu eina og hálfa milljón króna í miskabætur. Þá var honum gert að greiða laun verjanda síns, 1,6 milljónir króna og þóknun réttargæslumanns, 700 þúsund krónur.