Örn Pálmason, sem býr nálægt borginni Ivano-Frankivsk í Vestur-Úkraínu, segir að unga fólkið í bænum sé strax komið í sjálfboðastörf og andrúmsloftið sé að sumu leyti eins og hann man sem ungur maður þegar eldgosið hófst í Vestmannaeyjum.
„En hérna eru engar náttúruhamfarir heldur ástandið af manna völdum. Ég er hræddur um að Úkraínumenn eigi eftir að fara illa út úr þessu, því það liggur einhvern veginn í loftinu að allir muni berjast og það getur orðið skelfilegt,“ sagði Örn við MBL.
Örn er faðir Kolfinnu Vonar Arnardóttur, barnsmóður fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar sem segir:
„Afi Örn er í Úkraínu af öllum löndum og talar hér fallega um land og þjóð og leiðréttir ranghugmyndir og áróður. Mæli með að fólk lesi þessa frásögn, en gott væri að fá hann sem fyrst heim.“
Fréttin hefur verið leiðrétt. Fyrst stóð að Örn væri afi Björns Inga en það er ekki rétt. Leiðrétt klukkan 09:25 þann 26.2.2022.