Af­hjúpuðu styttu af þrí­eykinu: „Maður hugsar bara um allt fólkið sem var með manni í þessu“

Stytta af þrí­eykinu, Ölmu Möller land­lækni, Víði Reynis­syni yfir­lög­reglu­þjóni og Þór­ólfi Guðna­syni sótt­varna­lækni var af­hjúpuð við há­tíð­legar at­höfn við Björgunar­mið­stöðina í Skógar­hlíð í dag.

Þetta kemur fram í frétt Vísisen stað­setning styttunnar er tákn­ræn þar sem al­manna­varnir sam­hæfðu við­bragð sitt við Co­vid-19 far­aldrinum í Skógar­hlíð.

Styttan er gjöf frá hjónunum Margréti Rut Eddu­dóttur lista­konu og Haraldi Þor­leifs­syni, stofnanda Ueno. Haraldur segir að með þessu vilji þau heiðra þrí­eykið og sýna þakk­læti þjóðarinnar í verki.

At­höfnin hófst með á­varpi heil­brigðis­ráð­herra og vo hélt Þór­ólfur stutta tölu.

„Þetta er bara ó­trú­legur heiður, að fá styttu af sér eftir þetta og eftir þennan lista­mann er náttúru­lega meiri­háttar heiður,“ segir Víðir í sam­tali við Vísi.

„Maður hugsar bara um allt fólkið sem var með manni í þessu og manni finnst verst að það sé ekki hægt að hafa fleiri með.“

Hægt er að sjá út­sendingu Vísis hér.