Afhjúpar hvert Þórólfur er að fara í frí - Þú trúir ekki hver fer með honum

Í gær var greint frá því að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggðist ekki upplýsa um hvert hann væri að fara í frí, en hann er að fara í sína fyrstu utanlandsferð í frí frá því að heimsfaraldurinn hófst.

„Ég ætla nú ekkert að gefa neitt upp um það. Ég er bara að fara í frí,“ sagði Þórólfur við Fréttablaðið.

Nú virðist þó vera búið að upplýsa um hvert förinni sé heitið fyrir Þórólf. Á Twitter greindi nefnilega ein kona frá því að Þórólfur væri á leiðinni til uppáhalds eyju Íslendina, Tenerife.

Það var þó ekki allt, heldur vekur ferðafélagi hans mikla athygli. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.

„Vinkona mín flaug samferða sómapiltunum Þórólfi og Víði til Tene í gær.“ skrifaði konan.

Hún bætti við að hún ímyndi sér þá skála í sólinni.

„Nú sit ég og ímynda mér þá á amerísku ströndinni að skála ég samgleðst þeim svo innilega.“