Gríðarleg söluaukning varð í Vínbúðunum í nýliðnum apríl samanborið við sama mánuð í fyrra. Söluaukningin nam samtals tæpum 28 prósentum og seldust 471 þúsund fleiri lítrar í mánuðinum.
Frá þessu greinir Morgunblaðið í dag.
Aukningin var mest í sölu á rauðvíni (49%), hvítvíni (41%) og bjór (22%). Alls seldust 2.167.100 lítrar af áfengi í aprílmánuði en til samanburðar seldust 1.696.600 lítrar í apríl í fyrra.
Í frétt Morgunblaðsins kemur einnig fram að sala á áfengi í komuverslun Fríhafnarinnar hafi hríðfallið. Það þarf ekki að koma á óvart enda flugsamgöngur nánast legið niðri með öllu undanfarnar vikur. Alls seldust 3.975 lítrar af áfengi í komuverslun Leifsstöðvar í apríl en í fyrra seldust 195.452 lítrar, eða 98% meira en í ár.