Ævar Austfjörð, sem vakið hefur athygli fyrir að borða einungis dýraafurðir, segist hafa hafnað boði Lóu Pindar Aldísardóttur um að taka þátt í þáttunum Kjötætur óskast!.
Þættirnir vöktu talsverða athygli í vetur en síðasti þátturinn var sýndur á Stöð 2 í gærkvöldi. Í þáttunum tóku fjórar fjölskyldur þátt í fjögurra vikna vegantilraun, en eins og nafnið gefur til kynna áttu fjölskyldurnar einungis að borða veganfæði þennan tíma.
Lóa Pind tók einnig þátt en eins og Hringbraut greindi frá í morgun gafst Lóa Pind upp að þessum tíma liðnum. Viðurkenndi Lóa að tilraunin hefði í senn verið skemmtileg en erfið, enda þurfti hún að neita sér um flest það sem henni þykir best.
„Í fyrrasumar hringdi Lóa Pind Aldísardóttir í mig og bað mig að taka þátt í sjónvarpsþætti sem var í bígerð og hún kallaði Kjötætur óskast. Í þáttunum átti sem sagt fólk að gerast vegan í 4 vikur til að minnka kolefnissporið. Eftir nokkur símtöl og e-mail samskipti afþakkaði ég þetta mjög svo slæma boð. Ekki illa meint Lóa,“ segir Ævar í færslu á Facebook.
Hann segist hafa útskýrt fyrir henni hvers vegna hann hafnaði boðinu. „Fyrsta ástæðan var vegna þess að ég vissi að heilsa mín myndi ekki þola 4 vikur af þriðja flokks næringu,“ segir Ævar og bætir við að önnur ástæða sé sú að sú kolefnisreiknivél sem stuðst er við gefi ekki rétta mynd.
„Ég sagði Lóu líka að vegan fæði myndi auka lyfjanotkun og það þyrfti að reikna það inn í dæmið. Kolefnisspor lyfjaiðnaðarins í Bandaríkjunum er hærra en alls landbúnaðar. Mér sýnist a.m.k. helmingur þátttakenda stefna á aukna lyfjanotkun með sama áframhaldi. Það virðist vera að vegan fæði geti hentað einhverjum örfáum. En fæstir þola það til lengri tíma. Vel samansett fæði er ALLTAF betra með dýraafurðum,“ fullyrðir Ævar sem telur að hann hafi tekið rétta ákvörðun.
„Eftir að hafa fylgst með þáttunum þá er nokkuð ljóst að ég tók rétta ákvörðun. Fjögurra vikna brjóstsviði, viðrekstur og liðverkir hefðu ekki verið þess virði. Svo aðeins fátt sé talið.“
Eins og sést hér að framan er Ævar lítill aðdáandi veganfæðis. Í september 2019 fagnaði hann því til dæmis að hafa þá í rúm tvö ár einungis borðað kjöt eða dýraafurðir. Hann heldur úti Facebook-síðunni Iceland Carnivore Tribe-Kjötætur, en eins og nafnið gefur til kynna er grúppan fyrir þá sem hafa áhuga á að neyta eingöngu kjöts eða dýraafurða.