Ævar hættur á RÚV og strax sárt saknað: „Ég er kominn á aldur eins og það heitir“

Út­varps­maðurinn Ævar Kjartans­son stýrði í gær­morgun sínum síðasta fasta þætti hjá RÚV.

Undan­farin ár hefur Ævar stýrt þættinum Sam­tal sem hefur verið á dag­skrá Rásar 1 á sunnu­dags­morgnum, en í þættinum hefur hann fengið til sín góða gesti og spjallað við þá um heima og geima.

Það voru margir svekktir þegar Ævar til­kynnti hlust­endum í gær­morgun að þátturinn þann daginn yrði sá síðasti. Ævar varð nefni­lega sjö­tugur þann 26. ágúst síðast­liðinn.

„Þetta er síðasti þáttur af þessu tagi, síðasti þáttur reyndar sem ég stjórna hér hjá Ríkis­út­varpinu, því ég er kominn á aldur eins og það heitir. Þeir verða ekki fleiri, fastir þættir, kannski gríp ég í hljóð­nemann ein­hvern tímann þegar til­efni og tæki­færi gefst,“ sagði Ævar í lok þáttarins sem þakkaði hlust­endum sam­fylgdina á undan­förnum árum.

Ljóst er að margir munu sakna Ævars ef marka má um­mæli sem finna má á Face­book, meðal annars á síðu Ævars.

„Takk Ævar Kjartans­son, mun sakna þáttanna frá honum.“

„Þetta var ein­stak­lega góður þáttur að öðrum ó­löstuðum. Ég á eftir að sakna Ævars út út­varpinu.“

„Mikil eftir­sjá af þáttunum hans á sunnu­dags­morgnum.“

„Takk fyrir upp­fræðandi og á­huga­verða þætti Ævar. Mér þótti leitt að heyra í morgun að þetta væri loka­þátturinn þinn en bind vonir við að heyra í þér í út­varpinu stöku sinnum.“