„Nú stefnir í heimsmet um áramótin -- og frekar en að stemma stigu við ófögnuðinum er fólki sagt að byrgja glugga og pústa sig,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, doktor í þjóðháttafræði og fyrrverandi alþingismaður.
Ólína deilir á Facebook frétt RÚV þess efnis að Íslendingar gætu slegið heimsmet í svifryksmengun um áramótin. Fátt bendir til annars en að svifryksmengun á nýársnótt verði mikil, enda er spáð frosti og mjög hægum vindi sem eru kjöraðstæður fyrir svifryksmengun.
„Það er óskiljanlegt að þetta skuli vera látið líðast ár eftir ár. Umhverfisstofnun Evrópu áætlar að 60 ótímabær dauðsföll á Íslandi megi árlega rekja til útblástursmengunar -- öll vegna fíns svifryks, eins og fram hefur komið. Hér er allt á öðrum endanum vegna Covid19 -- en þetta er látið viðgangast. Sextíu mannslíf á ári,“ segir Ólína og bætir við að allt stefni í heimsmet um áramótin vegna flugelda.
Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, deilir þessari sömu frétt og Ólína og deilir sömu skoðun.
„Á sama tíma og við leitum sem betur fer allra leiða til að vernda fólk frá veikindum og dauða af völdum kórónuveirunnar heykjumst við á að takmarka sölu á flugeldum þótt vitað sé að mengun af þeirra völdum veldur fjölda fólks miklum óþægindum og heilsutjóni. Ég hef fulla samúð með björgunarsveitunum en það verður að finna einhverja aðra leið í fjáröflun þeirra. Þetta brjálæði gengur ekki.“
Hringbraut fjallaði í gær um færslu Magnúsar Ragnarssonar, framkvæmdastjóra hjá Símanum, þess efnis að þessi áramót væru kjörin til að hætta „flugeldaruglinu“ eins og hann orðaði það.