Ætlar að sleppa Íslandsmótinu og berjast frekar í Úkraínu

„Ég er ekki hræddur við dauðann og ég er tilbúinn að deyja fyrir landið mitt,“ segir Oleksandr Sulypa, úkraínskur stórmeistari í skák.

Sulypa mun ekki taka þátt í Íslandsmóti skákfélaga á fimmtudag, en til stóð að Sulypa myndi keppa fyrir Taflfélag Reykjavíkur. Ekkert verður úr þeim fyrirætlunum eftir að Rússar réðust á Úkraínu.

Morgunblaðið fjallar um málið í dag og ræðir við Sulypa um þessa ákvörðun, en hann er staddur við stórborgina Lviv þar sem hann vaktar landamærin og leitar í bifreiðum.

„Mitt verk er að vakta stöðvarnar og stöðva bíla sem eiga leið hjá. Í dag leitaði ég í yfir 2.000 bílum. Við tökum ekki þátt í bardögum en það eru njósnarar víða, sérstaklega nálægt flugvellinum þar sem ég er,“ segir hann við Morgunblaðið.

Sulypa hefur marga fjöruna sopið í skákinni og hefur hann aðstoða við þjálfun ungs skákfólks hér á landi. Þá leiddi hann úkraínska landsliðið til sigurs á Evrópumóti landsliða í Slóveníu undir lok síðasta árs.

Sulypa, vopnaður skotvopni, segir að hann taki ekki þátt í neinum bardögum að sinni en hann útilokar ekkert. „Ef mér er skipað að gera svo, þá mun ég fara og berjast í Kænugarði. Ég kann að skjóta, lærði það í skólanum,“ segir hann meðal annars.