Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fjölmiðlamaður til margra ára, rifjaði upp í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi þrælskemmtilega frásögn af því þegar hann sótti skáksnillinginn Bobby Fischer árið 2004 áður en hann kom hingað til lands og settist hér að.
Bobby Fischer var eins og margir muna ekki vinsæll í Bandaríkjunum eftir að hann keppti við Boris Spassky í fyrrum Júgóslavíu, en Bandaríkjamenn höfðu sett viðskiptabann á Júgóslavíu og gáfu út handtökuskipun á Fischer fyrir uppátækið árið 1992.
Fischer var því pólitískur flóttamaður, meðal annars í Ungverjalandi og á Filippseyjum, til ársins 2004 að hann var hann handtekinn í Japan.
Íslensk yfirvöld blönduðu sér í málið á eftirminnilegan hátt og til að gera langa sögu stutta var ákveðið að koma Fischer til landsins og gefa út íslenskt vegabréf fyrir hann. Úr varð að Páll, Fischer, Sæmundur Pálsson, betur þekktur sem Sæmi rokk, og Miyoko Watai, eiginkona Fischers, fóru upp í einkaflugvél sem átti að flytja hann til Íslands.
Flogið var frá Japan og stóð til að lenda í Kaupmannahöfn áður en hann færi í einkaþotu til Reykjavíkur. Vegna veðurs var ekki hægt að lenda í Kaupmannahöfn og var þess í stað lent á Sturup-flugvelli í Svíþjóð.
Páll rifjar upp flugferðina eftirminnilegu til Íslands en eins og margir vita var Fischer nokkuð sérlundaður.
„Það voru tveir flugmenn að vélinni, kona og karl. Þegar við komum um borð í vélina færði konan Fischer vatn að drekka. Hann er þá eitthvað að fíflast og segir: „Ég vissi ekki það væru flugfreyjur í svona litlum flugvélum,“ og konan brosir til hans blíðlega og segir: „Já, nei, ég er ekki flugfreyja við erum tvö flugstjórar að vélinni og skiptum bara með okkur verkum.“ Þá spurði hann: „Flýgur þú vélinni?“ „Já,“ svarar konan, „við skiptumst á að fljúga,“ og þá sagði Fischer: „Já, þá er ég farinn,“ og stóð upp og ætlaði út úr vélinni.“
Páll segist hafa spurt Fischer hvert hann ætlaði eiginlega, staddur á afskekktri flugbraut í Svíþjóð. Konan sem flaug vélinni var þó fljót að bjarga málunum þegar hún tjáði Fischer það að hún hafi flogið vélinni til Svíþjóðar en flugmaðurinn ætlaði að fljúga henni til Íslands. „Ég held hún hafi bara sagt þetta til að redda málunum svona,“ sagði Páll meðal annars í þessu fróðlega viðtali sem lesa má í heild sinni hér.