Ætla ekki að klippa höfuð­borgar­búa

Svo virðist sem hár­greiðslu­stofur sem starfa fyrir utan höfuð­borgar­svæðið muni ekki klippa höfuð þeirra sem óska eftir klippingu og eru bú­settir á höfuð­borgar­svæðinu.

Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðsins en blaðið hafði sam­band við hár­greiðslu­stofur á Akra­nesi, Hvera­gerði, Reykja­nes­bæ, Grinda­vík og á Sel­fossi í morgun. Allar höfðu tekið á­kvörðun um að klippa ekki kolla höfuð­borgar­búa.

Eins og kunnugt er tóku hertar að­gerðir gildi á höfuð­borgar­svæðinu í morgun og fela þær meðal annars í sér að hár­greiðslu­stofur á höfuð­borgar­svæðinu þurfa að loka dyrum sínum.

Frétta­blaðið vísar í Face­book-færslu hár­greiðslu­stofunnar Önnu á Sel­fossi þra sem kemur fram að stofan vilji sýna sam­stöðu og tak­marka flakk á milli lands­hluta. Þá ræðir Frétta­blaðið við Gunn­hildi Katrínu Hjalta­dóttur, eig­anda stofunnar, sem út­skýrir þessa af­stöðu stofunnar.

„Við verðum bara að sýna sam­­fé­lags­­lega á­byrgð og auð­vitað vonum við að fólk geri það,“ segir hún meðal annars.

Frétt Frétta­blaðsins.

Posted by Anna Hárstofa on Þriðjudagur, 6. október 2020