Ærsla­belgur eyði­lagður og tjónið metið á tvær milljónir króna

Unnar voru skemmdir á ærsla­belg í 88 húsinu, fé­lags­mið­stöð fyrir börn og ung­linga á Suður­nesjum, á dögunum. Í skeyti frá lög­reglu kemur fram að ærsla­belgurinn sé ó­nýtur eftir at­hæfið og er tjónið metið á tvær milljónir króna.

Nokkuð hefur verið um skemmdar­verk og þjófnaði í um­dæmi lög­reglunnar á Suður­nesjum á síðustu dögum. Þannig urðu tveir bygginga­kranar á Ás­brú fyrir barðinu á skemmdar­vörgum, sem brutu fjögur ljós á þeim og fjar­lægðu þrjú öryggi úr raf­magns­töflum.

Auk þessa rann­sakar lög­regla inn­brot og þjófnað úr Vallar­húsinu. Öryggis­mynda­vélar sýndu þrjá aðila ganga á allar dyr og glugga sem endaði með því að þeir brutu sér leið inn með því að sparka upp hurðina út á völl. Þeir höfðu á brott með sér far­tölvu, vallar­há­talara, sound­bar, mynd­varp, PS4 og fleira.

Knatt­spyrnu­deild Njarð­víkur birti mynd­band úr öryggis­mynda­vélum á Face­book og biðlaði til fólks að deila mynd­bandinu í þeirri von að skemmdar­vargarnir fyndust. „Því miður eru ó­nytjungar á meðal vor sem eiga hvergi heima nema í tukt­húsinu,“ sagði í færslunni.

Nú vantar okkur ykkar aðstoð kæru vinir. Við erum með til rannsóknar innbrot þar sem talsverðu magni af raftækjum var...

Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Mánudagur, 14. september 2020