Æf yfir vinnu­brögðum Sigurðar Inga: „Var ekki bara best að á­kveða þetta strax?“

Magnús Guð­munds­son, Bene­dikta Svavars­dóttir og Sig­finnur Mikaels­son, skrifa sam­eigin­lega grein til Sigurðar Ina Jóhannes­sonar Inn­viða­ráð­herra áVísi í dag. Greinin ber heitið Galin stjórnsýsla.

„Þá er ó­breytt strand­svæða­skipu­lag runnið í gegn hjá Sigurði Inga inn­viða­ráð­herra. Það er búið að eyða mikilli vinnu og stórum upp­hæðum í það. Seyðis­fjörður var settur í burðar­þols­mat á röngum for­sendum skv. svörtu skýrslu Ríkis­endur­skoðunar, af þá­verandi sjávar­út­vegs­ráð­herra Sigurði Inga Jóhannes­syni. Skipu­lagið er nánast eins og lagt var upp með fyrir fjórum árum. Sjó­kvía­eldið stjórnaði bæði upp­hafi og enda.

Var ekki bara best að á­kveða þetta strax?“ skrifa höfundarnir þrír sem eru fé­lagar í Fé­lagi um verndun fjarðar.

„Skipu­lagið brýtur á inn­viðum bæði á Vest- og Aust­fjörðum. Við ætlum fara yfir brotin í Seyðis­firði.

Seyðis­fjörður er eini fjörður landsins með fjar­skipta­streng til Evrópu. Farice-1 strengurinn er ríkis­eign, sem á að njóta fyllsta öryggis skv. öryggis­stefnu landsins. Strand­svæða­skipu­lagið, sem inn­viða­ráð­herra var að sam­þykkja, tryggir ekki öryggi hans því það brýtur fjar­skipta­lög,“ skrifar fé­lagarnir.

„VÁ vonar að Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra, sem fer með fjar­skipta­lög taki betur á málunum og full­verji strengi landsins, og að þjóðar­öryggi verði betur tryggt en nú er lýst í skýrslu Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra. Það á alla vega ekki að ógna fjar­skipta­strengjum af manna­völdum eins og strand­svæða­skipu­lagið gerir.“

Sigurður Ingi: Ný­sam­þykkt strand­svæða­skipu­lag brýtur fjar­skipta­lög á mikil­vægum inn­viðum.

„Seyðis­fjörður er önnur af far­þega-milli­landa­gáttum landsins, og eina höfnin með reglu­bundnar á­ætlunar­siglingar bíla- og far­þega­ferju milli Ís­lands og Evrópu til tæpra 50 ára. Auk þess fer mikill út- og inn­flutningur um höfnina. Seyðis­fjörður er fjórða stærsta skemmti­ferða­skipa­höfn landsins.“

„Seyðis­fjarðar­höfn er grunn­nets­höfn, sem nýtur siglinga­verndar. Siglinga­leiðin um ytri höfnina verður þrengd úr hófi fram, ef farið er að óskum Fisk­eldis Austur­lands um sjó­kvía­eldi. Ef þetta er gert er lítið gagn í upp­byggingu góðrar hafnar með tveim bíla­ferju­lægjum og að­stöðu fyrir stór skemmti­ferða­skip, sem unnið er við að land­tengja. Höfnin skapar miklar tekjur ekki bara fyrir Múla­þing heldur landið allt.“

Í frétt Inn­viða­ráðu­neytisins segir: ” rétt er að taka fram að vinna við á­hættu­mat siglinga stendur enn yfir á til­teknum svæðum,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­viða­ráð­herra.

„Að mati Land­helgis­gæslunnar er rík á­stæða til að stækka öryggis­svæði siglinga­leiða fjór­falt, úr 50 m í a.m.k. 200 m, til þess að gefa sjó­far­endum nauð­syn­legan við­bragðs­tíma, t.d. til stefnu­breytingar eða til að koma út akkeri.“

„Land­helgis­gæslan hvetur því svæðis­ráð og Skipu­lags­stofnun til þess að leggja heild­stætt mat á siglinga­svæði í strand­svæða­skipu­lagi svæðisins, ekki að­eins út frá mestu um­ferð skipa eins og hún er í dag, heldur út frá al­manna­öryggi og hvernig það verður best tryggt.“

„Sam­göngu­stofa og Vega­gerðin komu með síð­búnar at­huga­semdir við skipu­lagið vegna vita og siglinga­leiða. At­huga­semdir þessara stofnana voru ekki virtar.“

Hægt er að lesa grein hópsins í heild sinni hér.