Æf yfir skipun Stein­gríms: „Er þetta ekki örugg­lega grín?“

Skipaður hefur verið stýri­hópur fjögurra ráðu­neyta sem mun fara fyrir endur­skoðun á ör­orku­líf­eyris­kerfinu í sam­ræmi við á­herslur í stjórnar­sátt­mála ríkis­stjórnarinnar. Ráðu­neytin fjögur sem um ræðir eru for­sætis­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, heil­brigðis­ráðu­neytið og fé­lags- og vinnu­markaðs­ráðu­neytið. Það síðast­nefnda stjórna hópnum.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­verandi for­maður Vinstri Grænna og ráð­herra, hefur verið skipaður for­maður stýri­hópsins en aðrir með­limir hópsins eru Henný Hinz, Óli Björn Kára­son og Ey­gló Harðar­dóttir.

Skipun Stein­gríms sem for­maður hefur vakið furðu marga. Ingu Sæ­land segist vera ó­glatt. „Það er ekki eins og þessi ein­stak­lingur hafi ekki haft þúsund­föld tæki­færi og völd til að leið­rétta sví­virði­lega með­ferð stjórn­valda á ör­yrkjum og fram­færslu þeirra. Mér er ó­glatt svo ekki sé meira sagt,“ segir Inga í færslu sem birtist á Face­book síðu hennar.

Illugi Jökuls­son er sam­mála Ingu. Hann segir ríkis­stjórn Katrínar vera orðin gefin fyrir grín og glens á seinna kjör­tíma­bilinu. „Núna er búið að senda út grín­frétta­til­kynningu um að Stein­grímur J. og Óli Björn Kára­son eigi að leiða endur­skoðun á ör­orku­líf­eyris­kerfinu,“ segir Illugi í færslu á Facebook síðu hans.

„Skemmti­legt grín, ha, finnst ykkur ekki? – eða… er þetta ekki örugg­lega grín?“ bætir hann við.