Æf yfir endur­komu Sölva Tryggva: „Ekkert upp­gjör“

Fjöl­­miðla­­maðurinn Sölvi Tryggva­­son stefnir á að gefa út sjö eða átta áður ó­­­birta þætti úr hlað­­varpsseríu sinni Pod­cast með Sölva Tryggva. Hann hefur einnig endur­­út­­gefið eldri þætti úr seríunni.

Sölvi dró sig í hlé eftir að tvær konur kærðu hann til lög­­reglu, önnur fyrir meinta líkams­­á­rás og hin fyrir meint kyn­­ferðis­brot. Hann fjar­lægði þá alla þætti hlað­­varpsins úr spilun.

Ekki eru allir sáttir með þessa endur­komu Sölva og hefur fólk látið hann heyra það á sam­fé­lags­miðlinum Twitter.

Þor­steinn V. Einars­son kennari með meistara­gráðu í kynja­fræði og um­sjónar­maður vefsins karl­mennskan segist hafa það á til­finningunni að 2022 ætli að láta sem 2021 hafi aldrei gerst.

„Ekkert upp­gjör. Bara back to „normal“- Hann bara „hvarf smá.“ Tölum ekkert um það samt,“ skrifar Þor­steinn á Twitter og deilir skjá­skoti af frétt um endur­komu Sölva.

Edda Falak, þátta­stjórnandi hlað­varpsins Eigin Konur, deilir einnig skjá­skoti af frétt um endur­komu Sölva og skrifar „Merry Crisis.“

Hörður Ágústs­son, eig­andi Macland, deilir einnig skjá­skoti af fréttum um endur­koma Sölva og skrifar „Það vantar samt einn þátt.“ Hann vísar þar til þess að Sölvi hefur ekki sett inn þáttinn af sér að ræða um málin við lög­mann sinn er hann brast í grát.