Aðstandendur mannsins sem lést í Barðavogi þann 4. júní síðastliðinn hafa lagt fram níu bótakröfur.
Rúmlega tvítugur karlmaður, Magnús Aron Magnússon, hefur verið ákærður fyrir að hafa banað fjölskylduföður á fimmtugsaldri fyrir utan heimili hans að Barðavogi. Honum eru gefið að sök að hafa ráðist á manninn fyrst inni á stigagangi hússins og síðan utan við húsið þar sem hann sparkaði í, kýldi og traðkaði ítrekað á höfði hans og brjóstkassa með þeim afleiðingum að hann lést.
Þetta kemur fram íákærunni sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Fyrirtaka fór fram í málinu fyrr í vikunni.
Hver krafa hljóðar upp á þrjár milljónir auk 1,5 milljóna útfararkostnaðar í tveimur tilvikum, bætur vegna missis framfæranda að fjárhæð 3.130.691 króna í einu tilvikanna og 7.284.216 öðru tilvikanna og málskostnaðar. Alls eru þetta kröfur upp á 40.414.907 króna.
Í einkaréttarkröfu eiginkonu mannsins er krafist þess að hinn ákærði greiði henni þrjár milljónir í miskabætur, 1,5 milljónir fyrir útfararkostnað og málskostnað.
Hinn látni lætur eftir sig fjögur börn á aldrinum tveggja til 24 ára en þau eru öll með kröfu upp á þrjár milljónir í miskabætur.
Á myndinni hér að ofan má sjá Magnús leiddan á brott af lögreglu eftir að hann eyðilagði spjald hjá hópi sem mótmælti meðferð stjórnvalda á f lóttafólki hér á landi í mars 2019.