Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landspítalanum, segir það ekki rétt að nýjustu vendingar í heimsfaraldrinum hafi sýnt að sóttvarnaraðgerðir virki ekki. Málið er rætt inni á Facebook hópnum „Vísindi í íslenskum fjölmiðlum.“
Þar er frétt af ummælum Willum, heilbrigðisráðherra, að þjóðin þurfi að fara í gegnum tímabundinn kúf í faraldrinum. Spyr þá netverji hvort eitthvað sé verið að undirbúa bylgjuna á eftir þessari.
„Þórólfur vildi þrisvar setja meiri takmarkanir á skólahald til að hefta útbreiðslu þar en núna feldur Willum sig á bakvið það að aðgerðir hafi ekki borið árangur
Eigum við nóg af heilbrigðisstarfsfólki til að tækla þá martröð sem við erum á leiðinni inn í?
Er svo eitthvað verið að undirbúa bylgjuna á eftir þessari?“
Þá svarar Jón Magnús:
„Það ætti að vera öllum ljóst miðað við stöðuna núna að aðgerðirnar virkuðu víst mjög vel. Þær voru bara settar inn allt of seint og sumum ráðlögðum inngripum var hreinlega ekki beitt.
Sóttkví, einangrun, grímur og fjöldatakmarkanir virka. Punktur. Spurningin er alltaf hvenær á að nota þessi inngrip og við hvaða aðstæður.“