Aðgerðir gegn Aðalsteini ólögmætar: Segir dóminn hafa „tætt“ í sig rannsókn lögreglu

Lögreglunni á Norðurlandi eystra var óheimilt að veita Aðalsteini Kjartanssyni, blaðamanni Stundarinnar, réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn vegna umfjöllunar um hina svokölluðu skæruliðadeild Samherja. Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur komist að þessari niðurstöðu.

Stundin greindi frá þessu á vef sínum í dag.

Aðalsteinn óskaði eftir því að héraðsdómur myndi skera úr um lögmæti ákvörðunar lögreglu um að veita honum réttarstöðu sakbornings. Eins og greint hefur verið frá voru fjórir blaðamenn boðaðir til yfirheyrslu af lögreglunni á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar sinnar um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Það voru þau Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður á Kjarnanum, Aðalsteinn á Stundinni og Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks.

Í úrskurðinum, sem Stundin vitnar til, er vísað til undanþáguákvæðis laga um friðhelgi einkalífs. Þótti dómara ljóst að í þeim ákvæðum sé meðal annars átt við móttöku blaðamanna á gögnum sem innihalda upplýsingar sem eiga erindi við almenning.

Jón Trausti Reynisson, fyrrverandi ritstjóri Stundarinnar og núverandi framkvæmdastjóri miðilsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að dómurinn hafi „tætt í sig“ málatilbúnað og rannsókn lögreglunnar á Akureyri.

Umfjöllun Stundarinnar má lesa hér og færslu Jóns Trausta hér að neðan.