Linda Pétursdóttir, Ungfrú heimur árið 1988, birti býsna skemmtilegt myndband á Instagram-síðu sinni í dag. Myndbandið hafði aðdáandi hennar frá Mexíkó grafið upp og sent henni.
Um er að ræða viðtal sem Linda fór í skömmu eftir sigurinn í keppninni árið 1988. Linda fór í fjölmörg viðtöl eftir sigurinn og var eitt þeirra við Terry Wogan sem var umsjónarmaður The Terry Wogan Show á BBC.
Linda segir frá því að nokkrum árum eftir viðtalið hafi hún verið í Japan við fyrirsætustörf þegar samtal hennar og bresks kærasta hennar barst að umræddum þætti.
„Ég sagði honum að ég hefði einu sinni komið fram í þættinum. Kærastinn minn var orðlaus og spurði mig hvers vegna ég hefði ekki sagt honum frá þessu fyrr. Ég sagðist nú ekki hafa hugsað mikið um þáttinn þar sem ég fór í svo mörg viðtöl á þessum tíma. Það var þarna sem ég áttaði mig á því hversu stórt það var að hafa komið fram í þættinum. Ég átti engar myndir, hvað þá myndbönd af viðtalinu þannig að ég hafði aldrei horft á það.“
Linda segir að í síðustu viku hafi svo aðdáandi hennar frá Mexíkó haft samband og sagt henni að hann ætti viðtalið á spólu. Hann bauðst til að senda henni það sem Linda þáði með þökkum að sjálfsögðu.
Linda var yfir sig ánægð að geta nú loksins séð viðtalið eftir öll þessi ár. Hún horfði á viðtalið með dóttur sinni og viðurkennir að henni finnist skrýtið að á þessum tíma hafi hún einungis verið þremur árum eldri en dóttir hennar er núna.
„Minningarnar ylja manni um hjartarætur og ég verð að segja að ég er stolt af þessari ungu stúlku, sem fæddist í litlum sjávarbæ, og var kastað út í djúpu laugina án mikils undirbúnings,“ segir hún meðal annars í færslunni en myndbandið má sjá hér að neðan.