Aðalsteinn svarar Páli: „Það er líka lygi“

Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður Stundarinnar og fyrrverandi sjónvarpsmaður í Kveik, segir í grein á Stundinni það helberar lygar hjá Páli Vilhjálmssyni, bloggara og kennara, að hann hafi haft eitthvað að gera með þjófnað á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra og hafi verið yfirheyrður af lögreglu.

Páll fullyrðir á bloggi sínu að Aðalsteinn sé einhvers konar samsæri með Ríkisútvarpinu um að koma höggi á Samherja, meðal annars með því að stela síma Páls. Gögn úr síma Páls voru grundvöllur fjölmiðlaumfjöllunar fyrr á þessu ári um skæruliðadeildina svokölluðu sem samanstóð af Þorbirni Þórðarsyni, Örnu McClure og Páli.

„ Glæpurinn – sem ég er sagður hafa framkvæmt – á meðal annars að hafa falið í sér að koma sjómanni í slíkt ástand að hann þurfti á öndunarvél á sjúkrahúsi að halda. Páll gengur svo langt að tala um „banatilræði“. Allt til þess að ég gæti flutt fréttir af skæruliðadeild Samherja. Þetta er lygi. Ég hef aldrei tekið þátt í að stela farsíma, stela gögnum eða orðið valdur þess að einhver hafi þurft að tengjast öndunarvél til að lifa. Og mér finnst grafalvarlegt að vera sakaður um það,“ segir Aðalsteinn í grein sinni.

„Í ofanálag fullyrðir Páll að ég hafi verið yfirheyrður vegna rannsóknar lögreglu á þessum glæp. Það er líka lygi.“

Aðalsteinn segir að hann viti hreinlega ekki hvernig hann eigi að bregðast við svona kenningum:

„Meiðyrðamál mun líklega engu breyta. Svona svar kannski ekki heldur.“

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, skrifaði grein í gær þar sem hann segir að fyrrverandi fjölmiðlamaður sem hafi verið í skæruliðadeildinni sé að reyna að dreifa skrifum Páls til fjölmiðlafólks.

Helgi Seljan deilir þessu og segir: „Skæruliðadeildin redux.“

Brynjólfur Þór Guðmundsson, fréttamaður á RÚV, segir svo á Twitter:

„Ef Páll Vilhjálmsson er blaðamaður þá er ég atvinnubílstjóri. Enda aðeins 21 ár og nokkrir mánuðir frá því ég vann við útakstur mjólkurafurða.“