Aðal­steinn og Steinunn keyptu GAMMA-höllina: 420 milljónir fyrir 680 fer­metra

Fé­lag sem er í eigu hjónanna Steinunnar Margrétar Tómas­dóttur og Aðal­steins Karls­sonar hefur fest kaup á Garða­stræti 37. GAMMA Capi­tal Mana­gement, dóttur­fé­lag Kviku banka, var með starf­semi í þessu sama húsi í mörg ár.

Greint er frá kaupunum í Frétta­blaðinu í dag. Aðal­steinn er fjár­festir og fyrr­verandi eig­andi heild­verslunarinnar A. Karls­son.

Það var eignar­halds­fé­lagið SMT100 sem keypti húsið og var kaup­verðið um 420 milljónir króna. Ó­víst er hvaða starf­semi verður í húsinu sem er 680 fer­metrar með 977 fer­metra lóð.

Í frétt Frétta­blaðsins er bent á að GAMMA hafi keypt húsið árið 2013, en það var reist í lok fjórða ára­tugar síðustu aldar. Er það á meðal elstu fúnkis­húsa landsins og hýsti það til dæmis lengi vel starf­semi Síldar­út­vegs­nefndar.