Aðalsteinn bendir á áhugaverða staðreynd - Gæti þetta gefið vísbendingu um næsta meirihluta?

Framsóknarflokkurinn var óumdeildur sigurvegari borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík, og virðist hann vera í meirihluta í flestum mögulegum og raunhæfum sviðsmyndum.

Því velta margir fyrir sér hvar Framsókn sé nákvæmlega staðsett. Hvort hún sé nær Samfylkingunni, eða Sjálfstæðisflokknum?

Eflaust halda margir að Framsókn muni frekar leita til Sjálfstæðisflokksins, enda eru flokkarnir tveir nú í ríkisstjórnarsamstarfi, og þá var oddvitinn, Einar Þorsteinsson, orðaður við Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi áður en hann tilkynnti um Framsóknarævintýrið.

Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður Stundarinnar, bendir þó á áhugaverða staðreynd er varðar pólitíska staðsetningu Framsóknar í færslu á Twitter. Hann notar gögn úr kosningakönnun Stundarinnar sem sýna Framsókn talsvert nær hinum fallna meirihluta heldur en Sjálfstæðisflokknum.

Þá telur hann möguleika á að Framsókn sé enn fjær Sjálfstæðisflokknum, heldur en gögnin sýna, þar sem staðsetning Sjálfstæðisflokksins byggir einungis á svörum efstu tveggja frambjóðendanna.