„Orð sem vararíkissaksóknari lét falla á Facebook-síðu sinni í síðustu viku opna augu okkar fyrir viðhorfum sem enn grassera í samfélaginu. Ekki aðeins á jöðrum samfélagsins, heldur einnig meðal menntafólks í ábyrgðarstöðum. Þau minna okkur enn og aftur á að sömu viðhorf ríkja innan kerfa og stofnana sem eiga að halda utan um fólk í verri stöðu en fæst okkar munu nokkurn tíma upplifa. Þar ríkja þrjósk tregðulögmál sem ekkert virðist bíta á,“ skrifar Aðalheiður Ámundadóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag.
„Það er ekki bara hatrið og ógestrisnin í löggjöfinni sem ekkert virðist geta haggað, sem standa því fyrir þrifum að íslenska ríkið geti verið þjóð sinni til sóma í móttöku flóttafólks. Eins og margir hafa bent á hefur mannhatur búið um sig í kjarna Útlendingastofnunar og svo rækilega að ekki virðist nokkur leið að uppræta það önnur en að leggja stofnunina niður,“ bætir hún við.
Aðalheiður segir orð vararíkissaksóknara vera bergmál viðhorfa Útlendingastofnunar um að flóttafólk sé upp til hópa lygamerðir í dulargervi sem fletta þurfi ofan af.
„ Ítrekað hefur stofnunin opinberað ömurlega afstöðu til þeirra sem hingað leita skjóls. Konum frá ríkjum sem halda uppi sjaríalögum er ráðlagt að fara aftur heim en hafa sig hægar og lúta kúgunarlögum til að lifa af. Börn eru send á brott í ömurlegar aðstæður eða óvissu eftir að hafa fest hér rætur og eignast vini. Ófrískar konur reknar á dyr.“
„Útlendingastofnun er rotin að innan og með ónýtt erfðamengi. Henni er ekki viðbjargandi og íslenska þjóðin hatar hana. Það er óumflýjanlegt að uppræta þessa stofnun og byggja nýtt kerfi á nýjum grunni.“
„Opinberar stofnanir eru iðulega lagðar niður og verkefnum þeirra komið fyrir innan annarra stofnana eða í nýrri stofnun. Þjóðhagsstofnun, Barnaverndarstofa, Rannsóknarlögregla ríkisins, Nýsköpunarmiðstöð. Líkt og verkefnum þessara stofnana má koma móttöku flóttafólks og þjónustu við innflytjendur fyrir með farsælli og mannúðlegri hætti.“
„Vissulega þarf að gera fleira. Eftir einangrun gamla Íslands eimir enn eftir af fordómafullum, gamaldags viðhorfum. Kannski eru þau af sömu rót og ímugustur okkar á því að útlendingar eigi hér jarðnæði og að aðrir en íslenskir auðmenn eyði náttúruauðlindum landsins. Kannski þarf þjóðin bara að bíða af sér rasismann. Skoðanakannanir sýna að yngri kynslóðirnar eru víðsýnni og umburðarlyndari og útlendingaandúð eykst með hækkandi aldri. En sitjum ekki auðum höndum meðan við bíðum, heldur krefjumst þess að Útlendingastofnun verði lögð niður,“ skrifar Aðalheiður að lokum.