Aðalheiður fékk ekki bóluefni: Nú er hún í einangrun með COVID-19

Aðalheiður Auðbjargardóttir, íslenskur hjúkrunarfræðingur sem býr og starfar í Noregi, er nú í einangrun vegna COVID-19 eftir að hafa smitast á gjörgæsludeildinni í Bærum. Aðalheiður var ekki búin að fá bóluefni gegn COVID-19 þar sem hún er ekki í fullu starfi á gjörgæsludeildinni.

Norska ríkisútvarpið, NRK, fjallaði um þetta um helgina og ræddi við Aðalheiði. Um þetta hefur skapast nokkur umræða í Noregi, það er að hjúkrunarfræðingar sem gegna mikilvægu starfi í fremstu víglínu fái ekki bóluefni gegn COVID-19 af þeirri ástæðu að þeir eru ekki í föstu starfi á ákveðnum sjúkrahúsum eða heilbrigðisstofnunum.

Í frétt NRK kemur fram að Aðalheiður starfi fyrir Dedicare, einskonar starfsmannaleigu í heilbrigðisþjónustu. Í fréttinni kemur fram að 40 af 50 gjörgæsluhjúkrunarfræðingum Dedicare hafi ekki verið bólusettir. Aðalheiður hefur starfað sem gjörgæsluhjúkrunarfræðingur í sautján ár.

„Við vinnum í fremstu víglínu og það er mjög mikilvægt að við séum við góða heilsu. Þörfin er svo gríðarleg að gjörgæsluhjúkrunarfræðingum er flogið frá öðrum löndum á Norðurlöndunum,“ segir hún og veltir fyrir sér hvers vegna gjörgæsluhjúkrunarfræðingar í sömu sporum og hún hafa ekki fengið bóluefni.

NRK ræddi einnig við Gudrun Aune Hagen sem einnig starfar sem gjörgæsluhjúkrunarfræðingur hjá Dedicare. Hún hefur undanfarinn hálfan mánuð starfað á sjúkrahúsinu í Sandnessjøen og hefur ekki, líkt og Aðalheiður, fengið bóluefni.

„Mér líður eins og smitsprengju sem ferðast um Noreg þar sem ég vinn náið með COVID-sjúklingum“ Gagnrýnir hún að skrifstofufólk á umræddum sjúkrahúsum hafi margir hverjir fengið bóluefni en ekki hún, þó hún sinni mjög veikum einstaklingum sem glíma við COVID-19. „Hættumatið er ekki gott,“ segir Gudrun.

Umfjöllun NRK.