„Að vera skilinn eftir á bryggjunni og horfa á eftir niður­greiddri ferjunni sigla án okkar út í Við­ey er sárt“

Guð­jón Sigurðs­son, for­maður MND á Ís­landi, skorar á borgar­stjórn Reykja­víkur að bæta að­gengi að Við­ey. Hann sendi á­skorunina í dag á borgar­stjórn og fjöl­miðla.

Guð­jón segir það vera sárt að horfa á ferjuna sigla frá bryggjunni og geta ekki tekið þátt í við­burðum sem fram fara í Við­ey og eru niður­greiddir af borginni.

„Það gerist fyrir hjóla­stóla­not­endur í hvert sinn sem Reykja­víkur­borg heldur niður­greiddan við­burð þar, aug­lýstan fyrir alla, en er bara fyrir suma,“ segir hann.

Hann segir alla borgar­stjóra hafa boðað bót og betrun en ekkert hafi gerst. „Þolin­mæði okkar sem logið hefur verið að er þrotin,“ segir hann.

„Að segja að eitt­hvað sé ekki hægt er bara bull og vilja­leysi,“ segir Guð­jón. Ein skýring borgarinnar um að­gengis­leysi sé vegna flóð og fjöru.

„Síðan ég óskaði fyrst eftir að­gengi að Við­ey hef ég farið til: Vest­manna­eyja, Flat­ey á Skjálfanda þar sem vissu­lega gætir sjávar­falla, auk þess fór ég á Kína­múrinn og fé­lagar mínir skoðuðu Akra­polis í Grikk­landi um daginn,“ segir hann.

Þá bendir Guð­jón einnig á það að tvö hjóla­stóla­merkt salerni séu í Við­ey, það vanti bara not­endur þeirra á svæðið.