Sævar Helgi Bragason gefur lítið fyrir gagnrýni á Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni og skoðanir hans á grímunotkun Íslendinga. Sævar tjáir sig um málið á Twitter.
„Fólk deilir gamalli frétt um sóttvarnalækni þar sem hann mælti gegn notkun á grímum,“ skrifar Sævar. Hann tekur ekki fram til hvaða færslna hann vísar til en líkt og margir muna eflaust mælti Þórólfur ekki með grímunotkun í upphafi heimsfaraldursins.
Hann hefur dregið það til baka síðan og mælir nú með þeim allsstaðar þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð á milli fólks.
„Já, það vefst fyrir merkilega mörgum að vísindamenn skipta jafnan um skoöun þegar nýjar upplýsingar koma fram. Að ríghalda í skoðun er ekki dyggð, sér í lagi þegar upplýsingar breytast,“ skrifar Sævar.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn gerði grímunotkun fólks, eða skort þar á að umtalsefni á blaðamannafundi almannavarna nú í hádeginu.
„Það er ótrúlegt að heyra dæmi frá starfsfólki verslana um ókurteisi, hótanir og nánast ofbeldi frá viðskiptavinum þegar starfsmenn, sem oft er ungt fólk, er við dyrnar og er að leiðbeina fólki. Þetta er alveg ótrúlegt. Við erum að reyna að vinna þetta saman og þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi bara ekki við séum að takast á við þetta núna,“ sagði Víðir á upplýsingafundi í dag.
Fólk deilir gamalli frétt um sóttvarnalækni þar sem hann mælti gegn notkun á grímum.
— Sævar Helgi Bragason (@saevarhb) November 2, 2020
Já, það vefst fyrir merkilega mörgum að vísindamenn skipta jafnan um skoöun þegar nýjar upplýsingar koma fram.
Að ríghalda í skoðun er ekki dyggð, sér í lagi þegar upplýsingar breytast. pic.twitter.com/uH1qoowNK3