Mikil spenna ríkir í Bandaríkjunum um niðurstöður forsetakosninganna sem fram fóru í gær. Talning atkvæða stendur yfir og ljóst að brugðið getur til beggja vona.
Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir sigri nú í morgun en hann hefur verið gagnrýndur fyrir það, enda á enn eftir að telja milljónir atkvæða.
Íslendingar hafa verið duglegir að tjá sig á samfélagsmiðlum um kosningarnar og birtum við hér brot af þeirri umræðu.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á Facebook að gangi áform Donalds Trumps eftir um að koma í veg fyrir talningu á póstsendum atkvæðum þá sé ekki hægt að tala um Bandaríkin sem lýðræðisríki og ekki heldur hægt að fallast á að Trump sé réttkjörinn forseti. Bendir Guðmundur á að póstsendu atkvæðin hallist frekar Demókratameginn. „Slíkt væri ígildi valdaráns. Almennt talað er það hrollvekjandi tilhugsun að vera áfram eins og hlekkjaður við skjá að horfa á endalausa raunveruleikaþáttaröð um óbærilegan mann.“
Ágúst Ólafur Ágústsson, samflokksmaður Guðmundar, styður Biden og segir: „Að hafa 8 ár af Trump væri alltof stórt hlutfall af lífi okkar allra.“
Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Wikileaks, sagði á Facebook-síðu á sjötta tímanum í morgun að margt benti til þess að Trump myndi halda Hvíta húsinu. Íslenskur almenningur þyrfti að krefjast skýringa á því af hverju þessi niðurstaða sprettur fram þó að flestir fjölmiðlar hafi talið þeim trú um að þetta væri fjarstæður veruleiki.
„Þeir þurfa einnig skýringar frá öllum sérfræðingunum sem fullyrtu að búið væri að „laga“ fylgiskannanaskekkjur frá því fyrir fjórum árum og útilokað væri að Trump gæti unnið. Í leiðinni þarf íslenskur almenningur að huga að því hvaða vilja hann hefur til óbreyttra samskipta við Bandaríkin þegar litið er til viðskipta og hernaðarsamvinnu. Íslenskur almenningur vaknar til stórra spurninga.“