Tuttugu og fjögurra ára kona í San Francisco í Bandaríkjunum, Arna Kimiai, gæti átt yfir höfði sér nokkurra ára fangelsi eftir að Uber-bílstjóri í borginni birti myndband á samfélagsmiðlum.
Bílstjórinn, Subhakar Khadka, birti umrætt myndband í þar síðustu viku en á myndbandinu sést þegar tvær konur í aftursætum bifreiðarinnar missa stjórn á skapi sínu og veitast að bílstjóranum. Þrjár konur voru í bílnum og voru tvær þeirra ekki með grímu. Það varð til þess að Subhakar stöðvaði bifreið sína og vísaði þeim út skömmu eftir að hann lagði af stað.
Konurnar brugðust ókvæða við og létu allskonar fúkyrðum rigna yfir bílstjórann. Kimiai sést í myndbandinu einnig hósta í andlit bílstjórans og hrifsa af honum símann. Kimiai verður ákærð fyrir margvísleg brot, til dæmis líkamsárás, stofna heilsu bílstjórans í hættu og brot á sóttvarnarreglum.
Hún á yfir höfði sér 3.000 dollara sekt og gerir refsiramminn ráð fyrir nokkrum árum í fangelsi. Önnur kona sem var í bílnum, Malaysia King, var handtekin í síðustu viku en Kimiai var handtekin á sunnudag og sett í fangaklefa. Hún gengur nú laus gegn tryggingu.
Hér að neðan má sjá myndband frá Mail Online af atvikinu.