Afar hættulegt atvik átti sér stað á Reykjanesbrautinni í nótt er ökumaður á ógnarhraði keyrði á móti umferð. Atvikið virðist hafa átt sér stað við Smáralindina en ökumaður sem var réttu megin á veginum tók atvikið upp á myndband.
Ökumaðurinn virðist ekkert hægja á sér þótt bílar þeytast á móti honum. Sá sem tekur upp myndbandið lætur hins hljóma eins og ökurmaðurinn sé kona. „Þessi þarna. Hún ákvað að vera vitlausu megin,“ heyrist á upptökunni.
Sjón er sögu ríkari.
Rúnturinn pic.twitter.com/dnk1hhsr9x
— Alex Már Júlíusson (@Alex_Marrr) November 7, 2022