Á annað þúsund deilt áhugaverðri mynd Rögnu: „Nú reynir á mátt Facebook“

Ragna Gestsdóttir, blaðamaður Mannlífs, deildi mynd á Facebook síðu sinni og óskaði eftir aðstoð fólks við að koma henni til skila og hafa nú yfir eitt þúsund manns deilt færslunni.

„Ég fann þessa mynd fyrir utan Bónus í Skeifunni í dag. Aftan á henni stendur „Mamma og pabbi árið 1955.“ Það er örugglega einhver sem saknar þessarar myndar. Nú reynir á mátt Facebook að koma myndinni til eigandans. Endilega hjálpið með að deila,“ skrifar Ragna við færsluna.

Þar er þó ekki öll sagan sögð en myndin sem Ragna deilir er af tveimur leikurum úr myndinni Aftur til framtíðar, eða Back to the Future eins og hún heitir á ensku, og er af foreldrum aðalhetjunnar Marty McFly.

George og Lorraine voru foreldrar Marty McFly í Back to the Future.

„Held að sonur þeirra heiti Marteinn,“ skrifar ein við færsluna, „Vá, þau eru eins og úr bíómynd eða eitthvað,“ skrifar önnur. Þannig virðast margir hafa vitað að um grín væri að ræða.

Þrátt fyrir að Ragna hafi að öllum líkindum vitað að myndin væri ekki af íslensku fólki og deilt myndinni í gríni virðast ekki allir hafa gert sér grein fyrir því.

Í ummælum Rögnu við færsluna segir hún að af þeim sem deildu færslunni hafi margir ekki talið að um grín væri að ræða. „Er búin að fá skilaboð og vinabeiðnir,“ bætir hún við.

Færsluna og öll ummæli má sjá hér fyrir neðan: