98 ára Páll Bergþórsson fór hringinn í kringum landið um jólin

Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og fyrrverandi veðurstofustjóri, skellti sér hringinn í kringum landið um jólin. Páll er 98 ára og ber aldurinn vel eins og þeir sem til hans þekkja vita.

„Það er góð skemmtun að aka hringinn í kringum landið um jól,“ segir Páll í pistli á Facebook-síðu sinni þar sem hann birtir skemmtilegar myndir frá ferðalaginu.

Með í för voru sonur Páls, Bergþór og tengdasonurinn Albert Eiríksson. Þeir skelltu sér suður fyrir og vörðu jólunum hjá móður Alberts og tengdamóður Bergþórs í sveitinni á Fáskrúðsfirði. Þeir fóru svo norðurleiðina suður.

„Nú hef ég náð fullum tökum á að ferðast um langan veg í bíl, maður hreyfir sig í bílnum, fætur, hendur og ekur sér í sætinu. Ég fann ekki fyrir þessu. Auk þess vorum við einstaklega heppnir með færð, nánast sumarfæri allan hringinn, þó að kalt væri, en það gerir nú lítið til í hlýjum bíl.“

Páll segir að alls staðar hafi þeim þremur verið tekið með kostum og kynjum og fyrir það kveðst hann þakklátur. „Öllum vinum um landið þvert og endilangt vil ég svo óska gleðilegrar hátíðar.“