97 smit greindust í gær: 24 eru nú á sjúkrahúsi

Alls greindust 97 kórónuveirusmit hér á landi í gær og var rúmur helmingur í sóttkví við greiningu, eða 54 einstaklingar. Þetta þýðir að 43 voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í tölum sem birtar voru á vefnum COVID.is nú klukkan 11.

915 einstaklingar eru nú í einangrun vegna COVID-19-smits og tæplega 4.000 manns eru í sóttkví.

Verst er að þeim fjölgar sem eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Þeir eru nú 24 talsins og eru þrír á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita síðustu fjórtán daga er nú 213 á hverja 100.000 íbúa, en það er með því hæsta í Evrópu um þessar mundir.