Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar, sagði frá skemmtilegu samtali sem hún átti við fjörgamla frænku sína á dögunum.
Svo virðist sem frænka Eddu, sem er 92 ára gömul, hafi sterkar skoðanir á íslenskum stjórnmálum sem er vel. Edda segir frá þessu á Facebook-síðu sinni og er óhætt að segja að þær, það er Edda og frænka hennar, hafi komið mörgum til að brosa. Edda segir:
„Ég spurði fjörgamla frænku mína hvort hún ætlaði að kjósa uppáhalds stjórnmálakonuna okkar, Katrínu, eins og síðast. Frænka rumdi: „Nei, því miður. Hún er í svo vondum félagsskap - ég ætla að kjósa Sósíalistaflokkinn. Ég treysti þeim til að vera með uppsteyt, kjaft og ólæti á Alþingi!" Ég spurði hvort hún vildi byltingu: „Já helst!,“ sagði þessi 92ja ára töffari. „En í bili nægir mér að kjósa hrekkjusvín inn á þessa hundleiðinlegu samkomu - og svo er þetta ljóngáfað hugsjónafólk þar að auki!“ Ég kunni ekki við að minna hana á þá tíð þegar hún kaus XD og hundskammaði mig fyrir ólætin í kvennabaráttunni.“