88 kórónuveirusmit greindust hér á landi í gær, örlítið fleiri en á mánudag þegar 83 greindust. Það sem vekur hins vegar athygli er að töluvert færri sýni liggja að baki þessum 88 smitum en fjölda þeirra sem greindust á mánudag.
Nákvæmlega jafn margir voru í sóttkví og utan sóttkvíar við greiningu, eða 44 í hvorum hópi.
Fjórtán daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa heldur áfram að hækka og er það nú 268,9. 1.132 einstaklingar eru nú í einangrun vegna COVID-19 og tæplega 3.500 manns í sóttkví. 24 einstaklingar eru á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.
Í morgun var greint frá því að leikskóladeildinni Árholti við Glerárskóla á Akureyri hefði verið lokað í morgun eftir að barn þar greindist með kórónuveiruna. Allt starfsfólk leikskóladeildarinnar og börn eru farin í varúðarsóttkví vegna smitsins, en í tilkynningu frá Akureyrarbæ kom fram að beðið væri frekari fyrirmæla frá sóttvarnayfirvöldum. Í Árholti hafa verð 17 börn og 7 starfsmenn en deildin tilheyrir leikskólanum Tröllaborgum.