„Loksins kom að því,” voru fyrstu orðin sem vinningshafinn frá síðasta lottóútdrætti sagði þegar hún fékk símtal frá starfsmanni Íslenskar getspár. Starfsmaðurinn fékk það skemmtilega hlutverk að tilkynna henni að hún væri nú rúmlega 19,5 milljónum krónum ríkari.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Getspá.
Þar segir að vinningshafinn, sem er 86 ára gömul kona, hafi keypt sér miða á heimasíðu Getspár, lotto.is en hún segist alltaf kaupa sér miða í gegnum heimasíðuna því það sé bara ofur einfalt og þægilegt.
„Ég hef oft fengið litla vinninga en núna er loksins komið að þeim stóra hjá mér,” sagði hún glöð í bragði að því er segir í tilkynningunni.
Eiginmaður konunnar trúði ekki fréttunum fyrr en hann hafði sjálfur sannreynt að símanúmerið sem hringt var úr væri skráð á Íslenska getspá. Hjónin höfðu enn ekki ákveðið í hvað vinningurinn færi en sögðu að það yrði eitthvað mjög svo skemmtilegt.
Starfsfólk Getspár óskar vinningshafanum innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning.