Í ágústmánuði voru fluttar út vörur frá Íslandi fyrir 47,1 milljarð króna og inn fyrir 48,9 milljarða króna fob (52,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 1,8 milljarða króna. Í ágúst 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,3 milljarða króna á gengi hvors árs.
Þetta kemur fram hjá Hagstofunni sem birti frétt í morgun um vöruskiptin. Fyrstu átta mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 432,3 milljarða króna en inn fyrir rúma 440,6 milljarða króna fob (470,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam tæpum 8,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 5,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 3,1 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Fyrstu átta mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 57,9 milljörðum eða 15,5% hærra, á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður skv. tölum Hagstofunnar. Iðnaðarvörur voru 54,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,5% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 41,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.
Fyrstu átta mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 61 milljarði eða 16,1% hærra, á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.