Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist sérstaklega með umferð við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu nú þegar skólar eru að hefjast.
Í skeyti frá lögreglu kemur fram að viðbúið sé að bæði merktir og ómerktir lögreglubílar verði á ferðinni á þessum stöðum í umdæminu. Eitt þessara ökutækja er sérstakur myndavélabíll, en hann var staðsettur í Austurbergi í morgun þar sem fylgst var með bílum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla .
Á einum klukkutíma voru mynduð brot 30 ökumanna, en alls fóru 97 ökutæki í þessa leið á umræddum tíma. Næstum þriðjungur ökumanna, eða 31%, ók því of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst, en þarna er 30 km hámarkshraði.
Myndavélabíllinn var einnig notaður við hraðamælingar eftir hádegi í gær, en þá í námunda við Fellaskóla í eina klukkustund þar sem fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Norðurfell, á móts við Gyðufell.
Útkoman þar var ekki betri því 46 af 104 ökumönnum, 44% brotahlutfall, fengu sekt fyrir hraðakstur. Meðalhraði hinna brotlegu í Norðurfelli var 44 km/klst, en leyfður hámarkshraði þar er sömuleiðis 30.
Sá sem hraðast ók í Norðurfellinu mældist á 65 og á viðkomandi yfir höfði sér ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði og 70.000 kr. sekt.
Sem fyrr minnir lögreglan ökumenn á að virða hámarkshraða og að sýna tillitssemi og þolinmæði í umferðinni – það er allra hagur.