62 missa vinnuna hjá Frí­höfninni

Vegna mikils sam­dráttar í rekstri og ó­vissu vegna á­hrifa Co­vid-19 heims­far­aldursins hefur Frí­höfnin ehf., dóttur­fé­lag Isavia ohf, sagt upp 62 starfs­mönnum í dag.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá félaginu.

Þar segir að frá því á­hrifa far­aldursins fór að gæta hér á landi hafi stöðu­gildum hjá fyrir­tækinu fækkað um tæp 60 prósent. Á þessum tíma hefur verið gripið til ýmissa annarra hag­ræðingar­að­gerða sem snerta öll svið Frí­hafnarinnar.

„Því miður er staðan þannig að fækkun starfs­fólks er ó­hjá­kvæmi­leg,“ segir Þor­gerður Þráins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Frí­hafnarinnar, í til­kynningunni.

„Út­lit er fyrir að ferða­menn sem koma til landsins verði afar fáir næstu misserin og erfitt að spá fyrir um hve­nær fer að horfa til betri vegar. Við hjá Frí­höfninni höfum gripið til ýmissa hag­ræðingar­að­gerða frá því að heims­far­aldurinn hófst en því miður er staðan og út­litið verra en spáð var á fyrstu stigum.“