Óhætt er að segja að mikil ásókn hafi verið í tvö laus störf sem auglýst voru á pizzastaðnum Spaðanum, nýjum pizzastað Þórarins Ævarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra IKEA.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að 600 umsóknir hafi borist um tvö laus störf á staðnum.
Eins og alþjóð veit eru margir á atvinnuleysisskrá vegna COVID-19 faraldursins og því margir um hituna þegar kemur að lausum störfum.
Til stendur að opna staðinn um mánaðamótin og verður hann á Dalvegi 32b. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að allt söluferlið á staðnum sé rafrænt; sjálfsafgreiðslukassar munu taka við greiðslum og pizzurnar eru pantaðar í gegnum snjallforrit.