57 ár frá því Savanna tríó kom fyrst fram

Þátturinn Lífið er lag er á dagskrá Hringbrautar í kvöld og þar verður margt áhugavert tekið fyrir venju samkvæmt. Í upphafi verður rætt við Hjördísi Hendriksdóttur um verkefnið Vöruhús tækifæranna en það tengist viðfangsefnum fólks sem leitar nýrra tækifæra þegar þriðja æviskeiðið er hafið.

Þá mun Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi ræða við stofnendur Savanna tríósins, þá Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og Þóri Baldursson en tríóið kom fyrst fram „full klætt í búningum“ á Grillinu á Hótel Sögu þann 1.janúar 1963. Rakin er saga þessarar þekktu hljómsveitar sem markaði tímamót í íslensku tónlistarlífi landsmanna á 7. Áratugnum og margar skemmtilegar sögur rifjaðar upp í samtali við þá félaga sem tekið var upp á Grillinu nýlega.

Undir lokin spjallar þáttastjórnandinn við Jón Ragnarsson um starfsemi Sumargleðinnar en hann var framkvæmdastjóri hennar um nokkurt skeið snemma á 9. Áratugnum. Jón hefur að vanda frá mörgu skemmtilegu að segja frá þessu merkilega verkefni í íslensku skemmtanalífi sem á sér engan líkan. Kvikmyndatökur voru í höndum Friðþjófs Helgasonar.