50 klukkutímar sem björgunarsveitarmaður: „Tók við fúkyrðum frá brjáluðum manni með keðjusög“

„Það var þreyttur kall sem kom heim til sín áðan eftir að hafa eytt yfir 50 klukkustundum (sem er næstum því ein og hálf vinnuvika) síðan á Laugardag í að draga bíla, moka upp bíla, moka fólk út úr húsum, bjarga fólki inn úr óveðri, koma heilbrigðisstarfsfólki í og úr vinnu og ótal margt annað,“

Svona hefst færsla björgunarsveitarmannsins Tómasar Loga Hallgrímssonar á Facebook en hann tók þátt í sínu stærsta útkalli frá upphafi nú um helgina.

Tómas sem starfar með Björgunarsveitinni Suðurnes segir að ýmislegt hafi á daga hans drifið á þessari löngu, löngu vakt sem hófst á laugardaginn klukkan 10:46.

Meðal þess sem gerðist en hann átti ekki von á var að:

Yfir tvö þúsund aðstoðarbeiðnir myndu berast næstu sólahringa.

Mörg hundruð ökumenn hundsuðu tilmæli um að vera ekki á ferðinni.

Fá yfir sig drullu og vanþakklæti frá fólki.

Verða fyrir bíl uppá Reykjanesbraut.

Fá skammir frá fólki sem óð inná ófæra vegi fyrir að vera lengi að koma og losa það.

Taka við fúkyrðum frá brjáluðum manni með keðjusög (já þú last rétt).

Tómas segir þó að þrátt fyrir að vaktin hafi verið erfið og að hún hafi verið talsvert lengri en hann áætlaði hafi þetta allt verið þess virði.

„Ég hef sinnt starfi björgunarsveitarmanns síðan ég var 18 ára. Þetta starf sem er í almannaþágu er ólaunað sjálfboðaliðastarf og borga ég meira að segja töluvert með mér til þess að geta orðið að liði þegar náunginn þarfnast hjálpar,“ segir Tómas en tekur þó fram að það hafi verið verulega gefandi þegar:

„Sumir skjólstæðingarnir sýndu þakklæti, brostu til mín, sögðu takk… En þessi litla setning í lokin er ástæðan fyrir því að ég er björgunarsveitarmaður,“ sagði Tómas að lokum.