Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að vel geti farið svo að aðgerðir verði hertar að nýju hér á landi vegna smitanna sem greindust um helgina. Alls greindust 44 með kórónuveiruna í tveimur hópsýkingum. Þetta sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
Eins og komið hefur fram tengist önnur hópsýkingin leikskólanum Jörfa, en 36 smit eru rakin til hennar. Fjórtán börn hafa smitast, sextán starfsmenn og sex einstaklingar eru með fjölskyldutengsl við aðra á leikskólanum. Hin hópsýkingin tengist fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu þar sem átta einstaklingar hafa greinst.
Þórólfur sagði að báðar hópsýkingarnar tengist því að óvarlega var farið í sóttkví og að einstaklingar fóru veikir í vinnu. Þá sýni raðgreining að í báðum tilfellum sé um að ræða breska afbrigði veirunnar.
Þórólfur sagði að á þessum tímapunkti væri ekki ljóst hvort grípa þurfi aftur til harðari aðgerða. „Öll þessi smit áttu sér stað áður en byrjað var að slaka á á landamærunum,“ sagði Þórólfur og bætti við að ef við myndum sjá fleiri smit, sérstaklega í tengslum við leikskólann Jörfa, gæti vel farið svo að grípa þurfi til harðari aðgerða. Það væri þó ekki ljóst.
Margar skimanir í tengslum við hópsýkingarnar um helgina eru fyrirhugaðar í dag og þá nefndi Þórólfur að viðræður við Íslenska erfðagreiningu stæðu nú yfir um handahófskenndar skimanir. Með þeim sé hægt að varpa ljósi á það hversu útbreidd veiran er í samfélaginu. Niðurstöður hennar myndu nýtast vel til að ákveða til hvaða samfélagslegu aðgerða þurfi að grípa.
Þrír eru nú á Landspítalanum vegna COVID-19 og er einn í öndunarvél.
Þórólfur hvatti þá sem eru veikir eða með einkenni COVID-19 að fara í sýnatöku. Þá hvatti hann þá sem hafa verið veikir til að fara ekki til vinnu fyrr en þeir hafa farið í skimun. Benti hann á að sýkingarnar um helgina sýni hvernig einn einstaklingur getur sett af stað stóra hópsýkingu, jafnvel heila bylgju ef ekki er farið eftir leiðbeiningum.