34 ára Ís­lendingur greindist með mis­linga: Talinn hafa misst af bólu­setningu í æsku

Hraustur 34 ára karl­maður leitaði til læknis á lands­byggðinni tveimur dögum eftir að hafa komið heim frá Filipps­eyjum þar sem hann dvaldi í nokkrar vikur. Maðurinn veiktist á heim­leiðinni með hita, hrolli, hósta og háls­særindum á­samt niður­gangi og varð síðan var við út­brot á bringu, hálsi og kvið sem dreifðust um allan líkamann. Í ljós kom að maðurinn var með mis­linga.

Fjallað er um þetta til­felli í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðsins en þar segir að maðurinn hafi verið með tæp­lega 41 stigs hita við komuna til læknis. Grunur vaknaði strax um hita­beltis­sjúk­dóm og við eftir­grennslan fundust auð­veld­lega fréttir af mis­lingafar­aldri á Filipps­eyjum.

Í um­fjöllun Lækna­blaðsins kemur fram að maðurinn hafi verið fluttur til ein­angrunar og með­ferðar á Land­spítala vegna versnandi á­stands og skorts á ein­angrunar­að­stöðu. Eftir ræktun var sýkla­lyfja­með­ferð hafin með sýkla­lyfi í æð og þá fékk maðurinn al­menna stuðnings­með­ferð með vökva í æð og súr­efni.

Að því er fram kemur í Lækna­blaðinu er hiti eftir ferða­lag snúið klínískt vanda­mál með fjölda mis­muna­greininga. Ná­kvæm saga með á­herslu á á­fanga­staði og tíma­setningar með hlið­sjón af út­breiðslu og með­göngu­tíma smit­sjúk­dóma er lykil­at­riði. Nokkra sjúk­dóma er vert að hafa sér­stak­lega í huga, til dæmis malaríu, bein­bruna­sótt og mis­linga. Við rann­sókn kom í ljós að maðurinn var með mis­linga­veiruna.

Mis­lingar geta verið hættu­legir en sýkingin leggst á allan líkamann og felur í sér hættu á heila­bólgu. „Fáir sjúk­dómar smitast jafn­auð­veld­lega og mis­lingar með úða­smiti. Veiran getur verið í and­rúms­lofti þar sem sjúk­lingur hefur verið og valdið smiti allt að tveimur klukku­stundum síðar. Með­göngu­tími mis­linga er ein til þrjár vikur eftir út­setningu en sjúk­lingar byrja að smita um sólar­hring áður en ein­kenni koma fram eða 4-5 dögum áður en út­brot koma fram og eru smitandi að minnsta kosti næstu 6 dagana,“ segir í Lækna­blaðinu.

Bent er á að bólu­setning gegn mis­lingum veiti góða vörn gegn sjúk­dómnum en enn fremur kemur fram að mis­lingar séu út­breiddir á svæðum þar sem þátt­taka í bólu­setningum er ekki nógu mikil. Þessi til­tekni sjúk­lingur taldi sig full­bólu­settan en að því er fram kemur í Lækna­blaðinu reyndist ekki hægt að finna stað­festingu þess. Er talið lík­legt að hann hafi misst af bólu­setningu vegna flutnings milli landa í æsku.

Sjúk­lingnum skánaði fljótt eftir inn­lögn og út­skrifaðist hann heim eftir fimm daga sjúkra­húss­legu. Þá segir í um­fjölluninni að í sam­ræmi við sótt­varna­lög hafi sótt­varna­lækni verið til­kynnt um til­fellið eins fljótt og auðið varð.

„Smitrakning var fram­kvæmd og allir sem kunnu að hafa verið út­settir fengu upp­lýsingar og ein­staklingar settir í heima­sótt­kví. Fyrstu bólu­setningu barna var flýtt og öðrum með ó­vissu um fyrri bólu­setningar boðin slík. Í kjöl­farið greindust sam­tals 6 til­felli mis­linga til við­bótar út frá þessum ein­stak­lingi og voru 6800 manns bólu­settir.“