Stórgæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús við Blikanes á Arnarnesi er nú til sölu. Ekki er um neinn kofa að ræða því húsið er 376 fermetrar og er ásett verð 275 milljónir króna.
Í lýsingu Eignamiðlunar sem er með húsið til sölu segir meðal annars:
„Blikanes 16 er 376,6 fm. er fallegt og stílhreint hús á tveimur hæðum sem stendur hátt á lóðinni og hefur því góðan suðurgarð og skjólsæla verönd. Húsið hefur nánast algjörlega verið endurnýjað á undanförnum 4 árum á vandaðan og smekklegan máta og húsið stækkað til muna.“
Sex svefnherbergi eru í húsinu og fjögur baðherbergi. Ein mynd vekur sérstaka athygli en hún er úr hjónasvítunni þar sem finna má frístandandi baðkar inni í sjálfu herberginu. Þá er fataherbergi í svítunni, reyklitaðir speglar og svört innrétting. Og að sjálfsögðu er sér baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni inn af hjónaherberginu.





