29 smit greindust í gær

Alls greindust 29 kórónu­veiru­smit hér á landi í gær sem er svipað og daginn þar áður. Tuttugu ein­staklingar voru í sótt­kví, eða 71%. Þá greindust níu smit á landa­mærunum.

Þetta kom fram í máli Rögn­valdar Ólafs­sonar að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjóns á upp­lýsinga­fundi Al­manna­varna sem hófst klukkan 11:03.

Alls er 71 ein­stak­lingur á sjúkra­húsi með veiruna og þrír á gjör­gæslu.

Undan­farna daga hefur fjór­tán daga ný­gengi innan­lands­smita á hverja 100 þúsund íbúa lækkað hratt. Sú tala stendur nú í 183,5 en fór hæst í 291,5 um miðjan októ­ber­mánuð.